Við notum vafrakökur til að greina upplýsingar um notkun vefsíðunnar til að bæta efni og birta markaðsefni. Nánar um vafrakökur LEYFA VAFRAKÖKUR
Stangaveiðifélag Akureyrar

Borið hefur á því að menn fari ekki að reglum í Ólafsfjarðará og veiði upp við foss . Í vetur var svæðamörkum breytt, þannig að efri mörk efra svæðis í ánni voru færð neðar og stór og áberandi skilti sett upp sem benda á þetta. Annað hvort eru menn því illa læsir eða með einbeittan brotavilja þegar þeir fara upp að fossi eða steini og kasta uppí fossinn en þar safnast fiskur upp þegar líða tekur á sumarið,mest hrygningarfiskur. Við viljum því ítreka við veiðimenn að fara að reglum í ánni nú þegar örfáir dagar eru í að áin loki !! 

Til baka

Keyrt á vefkerfi veidileyfi.is © 2026.