Hörgá er dæmigerð dragá, köld með breytilegu vatnsmagni og oft jökullituð á sumrin. Hún er þriðja stærsta áin sem rennur í Eyjafjörð á eftir Eyjafjarðará og Fnjóská.
Veiðisvæði Hörgár nær efst frá Nautá við Bakkasel í Öxnadal og Básfossi í Hörgádal og niður að ósum Hörgár sem er á milli jarðanna Skipalóns og Óss.
Öxnadalsá rennur í Hörgá rétt utan við Staðartungu. Í árnar renna margar hliðarár úr hliðardölum og skörðum. Þær helstu Öxnadalsmegin eru Vaská rétt utan við Bakkasel, Þverá utan við Hóla og Bægisá rétt framan við Bægisárhyl. Hörgárdalsmegin eru Myrká og Barká stærstu hliðarárnar. Barká er jökulsá úr Barkárdalsjökli og nær oft að lita Hörgá hressilega. Utan við Staðartungu eru stærstu hliðarárnar Fossá að austan og Syðri- og Ytri-Tunguár að vestan.
Kynþroska sjóbleikja fer að ganga í Hörgá í júlí og þær sem ganga lengst fram í dalina koma fyrstar en bleikjan hrygnir annars um alla á.
Algeng þyngd kynþroska sjóbleikju er um 0,5 – 1,0 kg en þær þyngstu eru um 3 kg. Bleikjan gengur langt fram fyrir Bakkasel í Öxnadal, að Básfossi í Hörgárdal og að Byrgisfossi í Myrká sem er neðstur þriggja fossa í mynni Myrkárdals. Í lok ágúst og frameftir hausti gengur ókynþroska smábleikja í Hörgá, oft í stórum torfum. Í Öxnadalsá er einnig dvergvaxin bleikja steingrá að lit. Hún er talin koma úr Þverbrekkuvatni og Hraunsvatni í Öxnadal.
Á undaförnum árum hefur hlutur urriða og sjóbirtings verið aukast í veiðinni og þeir eru að veiðast ofar á vatnasvæðinu, sérstaklega fram í Öxnadal. Þessar tegundir eru þó algengastar neðst í Hörgá, frá Steðji og út eftir. Oft er mikið af smáurriða í kílum og sundum og fyrri hluta sumars leitar stórurriðinn þangað inn í ætisleit. Þyngstu urriðarnir sem veiðast eru um 3 kíló en stærsti skráði sjóbirtingurinn (2011) var 5 kg.
Svæðaskipting
Svæði 1 nær frá Hörgárósum að Votahvammi að austan sem er á móti Hesthólma að vestan.
Svæði 2 nær að austan upp að Stekkjarhól í landi Djúpárbakka sem er á móts við bæinn Litla Dunhaga að vestan.
Svæði 3 nær upp að Syðri-Tunguá að vestan og að Steðja að austan.
Svæði 4a nær upp að ármótum Hörgár og Öxnadalsár.
Svæði 4b er efsta svæðið Hörgárdalsmegin og nær upp að Básfossi.
Svæði 5a er neðri hluti Öxnadalsár og nær frá ármótum að Jónasarlundi. Á þessu svæði er eftirsóttasti veiðistaður árinnar sem er Bægisárhylur.
Svæði 5b er efra veiðisvæði Öxnadalsár og nær fram í Bakkasel að Nautá sem kemur ofan af Öxnadalsheiði.
Veiðitími
Svæði 1, 2, 3 og 4a - 15. júní - 30. september
Svæði 4b og 5a - 15. júní - 10. september
Svæði 5b - 15. júní - 10. september (fluguveiði eingöngu,allri bleikju sleppt)
Veitt er frá kl 7:00 á morgnana til kl 13:00 og 16:00 til 22:00 fram til 1. ágúst. Eftir 1. ágúst er seinni vaktin frá 15:00 til 21:00
Stangir: Hörgá er skipt í 7 svæði og er veitt á 2 stangir á hverju þeirra - eða samtals 14 stangir.
Kvóti og agn: Kvóti er 3 bleikjur/stöng/vakt og leyfilegt agn er fluga, maðkur og spónn með eftirfarandi undantekningum:
Á svæði 5b er eingöngu leyfð fluguveiði og skal öllum fiski sleppt á því svæði.
Í ljósi verndunarsjónarmiða biðlum við til veiðimanna okkar að sleppa allri bleikju sem er yfir 50 sm.
Ekkert veiðihús er við Hörgá, en stutt er til Akureyrar og næg gistiaðstaða.
Veiðimenn eru beðnir að ganga vel um árbakkana, aka einungis á vegaslóðum og hirða upp allt rusl eftir sig.
Fimm hæstu urriðaflugurnar síðustu árin eru Grey ghost, Nobbler svartur, Heimasæta, Nobbler og Krókur.
Fimm hæstu bleikjuflugurnar síðustu árin eru Krókur, Nobbler, Heimasæta, Bleik & Blá og Grey ghost.
Veiðiverðir: Guðmundur Helgi Gunnarsson, sími 866-3295 og Helgi Bjarni Steinsson, sími 861-8802
Skylt er að skrá allan veiddan fisk í rafrænu veiðibókina á Svak.is.