Við notum vafrakökur til að greina upplýsingar um notkun vefsíðunnar til að bæta efni og birta markaðsefni. Nánar um vafrakökur LEYFA VAFRAKÖKUR
30.4.2025 - Hörgá í forsölu föstudaginn 2.maí.

Veiðidagar í Hörgá koma inná söluvefinn okkar föstudaginn 2.maí um hádegisbil. Við ætlum að gefa félagsmönnum SVAK færi á að kaupa sér daga áður en áin fer í almenna sölu og bjóðum því uppá forsölu í viku eða til 9.maí. 

Öll veiðisvæðin í ánni opna sunnudaginn 15.júní.

Verðskrá er sú sama og í fyrra og fá félagsmenn um 20 % afslátt af veiðileyfum. Veiðifyrirkomulag er einnig það sama nema að svæði 4a mun loka 10 september líkt og svæði 4b, 5a og 5b.

Þó kvóti sé áfram sá sami og áður þ.e 3 bleikjur/stöng/vakt  biðlum við til veiðimanna að sleppa sem flestum bleikjum í verndunarskyni, sérstaklega þeim sem eru yfir 50 sm.  Á svæði 5 b í Öxnadal er áfram sama regla um fluguveiði eingöngu og sleppiskyldu á allri bleikju. Nánar má lesa um Hörgá hér á síðunni undir veiðisvæði.

Með von um gleðilegt veiðisumar


Til baka

Keyrt á vefkerfi veidileyfi.is © 2025.