Við notum vafrakökur til að greina upplýsingar um notkun vefsíðunnar til að bæta efni og birta markaðsefni. Nánar um vafrakökur LEYFA VAFRAKÖKUR
5.4.2022 - Opið hús - Hnignun Sjóbleikju – Hvað er til ráða

Eftir langar og strangar samkomutakmarkanir er nú loksins komið að því að hittast á opnu húsi.

Bleikjan – Styðjum stofninn eru nýstofnuð félagssamtök sem hafa  það að markmiði að gæta hagsmuna sjóbleikju og meta aðgerðir til að styrkja stofninn. 

Í samstarfi við Stangaveiðifélag Akureyrar (SVAK), Veiðifélögin í Eyjafirði og Fiskirannsóknir ehf verður haldin opinn fundur um málefnið 19. apríl næstkomandi. 

Staðsetning er Deiglan í Gilinu á Akureyri og hefst fundurinn kl. 20:00. 

Þar verður stiklað á stóru um þá þætti sem teljast vera orsakavaldar hnignunarinnar og hvað er til ráða. Fundarstjóri er Sigmundur Ófeigsson en mælendur verða Högni Harðarson hjá Fiskirannsóknum ehf og Stefán Sigmundsson. 

Vonumst til að sjá sem flesta.

Veitingar í boði.

Til baka

Keyrt á vefkerfi veidileyfi.is © 2023.