Við notum vafrakökur til að greina upplýsingar um notkun vefsíðunnar til að bæta efni og birta markaðsefni. Nánar um vafrakökur LEYFA VAFRAKÖKUR
15.11.2024 - Laxárbókin- afsláttur til félagsmanna SVAK

Félagsmönnum SVAK býðst að kaupa þetta glæsilega rit um Laxá í Mývatnssveit og Laxárdal í forsölu og á afslætti frá 1.nóv-21.nóv. 

Allir félagsmenn ættu að hafa fengið póst varðandi kaupin. 

Óskum útgefendum innilega til hamingju með þessa veglegu bók !

Nánar um bókina hér fyrir neðan :

Forsala á bókinni um Laxá  til félaga í Stangaveiðifélagi Reykjavíkur, Stangaveiðifélagi Akureyrar og Ármönnum verður 1. – 21. nóvember á síðunni : www.Laxarbokin.is


Útgáfudagur bókarinnar verður 21. nóvember n.k og mun bókin kosta kr. 14.900.- Fram að þeim tíma gefst félögum í Stangaveiðifélagi Reykjavíkur, Stangaveiðifélagi Akureyrar og Ármönnum kostur á að kaupa bókina í forsölu á kr. 12.800.- 
 
SVFR, SVAK og Ármenn hafa öll sterka tengingu við urriðasvæðin í Laxárdal og Mývatnssveit í nútíð og fortíð og studdu útgáfu bókarinnar af myndarbrag. Er vísað á heimasíður þessara þriggja stangaveiðifélaga um nánari upplýsingar um bókina og forsölu hennar á heimasíðunni www.laxarbokin.is
 
Útgefandi bókarinnar er Veraldarofsi ehf. og á bak við útgáfuna standa 7 forfallnir unnendur urriðasvæðanna í Laxárdal og Mývatnssveit sem hafa með áratuga viðveru sinni við Laxá myndað mikil tengsl við ána og umhverfi hennar, náttúruna, lífríkið og mannfólkið sem þar býr. Það eru þessi tengsl sem á endanum reka þá til að skrifa bók um þessa einstöku á og upplifun hópsins af Laxá og umhverfi hennar og miðla veiðimönnum og náttúruunnendum af ríkulegum innistæðum í minningarbanka hópsins
Lýsingar á veiðisvæðum og veiðiskapur eru meginþráður bókarinnar en sögur af mannfólki við ána og fróðleiksmolar af bændum og samferðamönnum þeirra á ýmsum tímum gefa hverju svæði aukið gildi.
 
Þeir Sigurður Magnússon og Ásgeir H. Steingrímsson lýsa veiðisvæðunum í Mývatnssveit og Laxárdal af einstakri þekkingu og innsæi og lýsingunum fylgja 18 ný endurgerð veiðikort með veiðistaðamerkingum og frábærum loftmyndum Jóns Aðalsteins Þorgeirssonar ásamt myndum af veiðimönnum í glímu við hinn einstaka urriðann sem í Laxá býr.
 
Er ekki að efa að veiðistaðalýsingar þeirra félaga ásamt kortum og myndum eiga eftir að veita veiðimönnum dýpri og betri innsýn í undraheim Laxár og nýtast vel til stefnumóta við urriðann. Jón Aðalsteinn og Baldur Sigurðsson skrifa um sögu urriðaveiðanna frá landnámi til okkar daga og rita þætti af veiðum heimamanna gegnum tíðina og taka einnig viðtöl við veiðimenn síðari tíma ásamt umfjöllun um veiðiaðferðir, flugur ofl. Prófessor Gísli Már Gíslason ritar afar fróðlegan kafla um lífríki Laxár og Jón Benediktsson bóndi á Auðnum fjallar um Laxárdeiluna frá nýju sjónarhorni og ritar að auki kafla um æskuminningar sínar í Laxárdal. Loks eru birt skrif Stefáns Jónssonar, Gengið með ánni.
 
Bókin er 306 blaðsíður og er ríkulega skreytt loftmyndum og myndum af veiðistöðum, umhverfi árinnar, veiðimönnum, flugum o.m.fl. Bókinni ritstýrir Jörundur Guðmundsson. 
 
Allar nánari upplýsingar veita Friðrik Þ. Stefánsson í s. 616 1313, Jón Aðalsteinn Þorgeirsson, s. 895 9702 og Jörundur Guðmundsson s. 861 5613
Til baka

Keyrt á vefkerfi veidileyfi.is © 2024.