Aðalfundur Stangveiðifélags Akureyrar verður haldinn þriðjudaginn 26.apríl kl 20 í Deiglunni við Kaupvangsstræti.
Dagskrá fundarins verður eftirfarandi:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
2. Formaður flytur skýrslu stjórnar
3. Farið yfir ársreikning félagsins og hann lagður fram til samþykktar
4. Umræður um ofangreint
5. Fundarhlé, veitingar
6. Kosningar í stjórn og varastjórn ásamt skoðunarmönnum reikninga.
7. Önnur mál
Þessir hafa gefið kost á sér í stjórn SVAK:
Aðalstjórn: Guðrún Una Jónsdóttir, Jón Bragi Gunnarsson, Stefán Gunnarsson, Anna Kristveig Arnardóttir og Valgerður Jónsdóttir
Varastjórn: Guðmundur Ármann Sigurjónsson og Benjamín Þorri Bergsson.
Valdemar Heiðar Valsson og Jóhann Gunnar Sigdórsson hafa látið af störfum í stjórn SVAK og þökkum við þeim vel unnin störf. Guðmundur Ármann var í aðalstjórn en gefur nú kost á sér í varastjórn. Stefán Gunnarsson og Anna Kristveig Arnardóttir sem sátu í varastjórn gefa kost á sér í aðalstjórn. Valgerður Jónsdóttir býður fram krafta sína í aðalstjórn félagsins en hún hefur ekki starfað fyrir félagið áður. Benjamín Þorri Bergsson kemur síðan nýr inní varastjórn.
Nánar um félagið og kosningu í stjórn þess má kynna sér á heimasíðu félagsins.
Vor og veiðikveðjur
Stjórn SVAK