30 jan. 2011
SVAK-kvöld
Mánudaginn 31.01 kl. 20:30 eru hnýtingar og verður þemað túbur - Kristján Ævar sýnir okkur öll nýjustu trixin.
Kristján Ævar er ungur hnýtari sem hefur á skömmum tíma öðlast heimsfrægð fyrir hnýtingar sínar. Hann hefur meðal annars átt flugur í innlendum fluguhnýtingabókum, unnið hnýtingakeppnir og er nú orðinn atvinnuhnýtari í hnýtingaliði
protubeflysystem.

Kristján ætlar að hnýta með okkur mánudagskvöldið 31.01 kl. 20:30-22:00 og mun hann meðal annars að sýna okkur nýjustu tækni í túbuhnýtingum en þar er um að ræða nýja aðferðafræði sem fyrirtækið protubeflysystem hefur hannað. Kerfið þykir miklu einfaldara í notkun og býður uppá mikla möguleika. Kristján mun hnýta nokkrar túbur og sýna efni og áhöld, svo mun hann ganga á milli og leiðbeina mönnum.

Allir velkomnir, heitt á könnunni og takið endilega með ykkur hnýtingasettið.
-----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Vetrarstarf SVAK hófst síðasta mánudag með sýningu myndarinnar "Home for salmon". Það sem eftir lifir vetrar munum við hittast á hverju mánudagskvöldi á Hólabrautinni (áður Framsóknarflokkurinn).
Dagskráin verður þrískipt,
-Fyrsta mánudaginn er fræðsla eða bíósýning,
-Annan mánudaginn eru hnýtingar og mætir þá hnýtari sem fer yfir ákveðna tegund af hnýtingum
-Þriðja mánudaginn er svo veiðisvæðakynning
E.s. ef þú ert með hugmynd að viðburði á SVAK-kvöldi sendu okkur þá línu á svak@svak.is
--------------------------
Bestu kveðjur
Stjórn og fræðslunefnd SVAK
Til baka