23 maí 2010
Vorfagnaður SVAK 2010
Laugardaginn 29. maí 2010 mun Stangveiðifélag Akureyrar (SVAK) standa fyrir vorfagnaði og veiðivörukynningu.
Staðsetning er við Leirutjörnina í innbænum.
Vorfagnaðurinn og veiðivörukynningin er frá 13:00 – 15:00
Kynntar verða vörur frá veiðivörur.is og Ellingsen. Ýmis góð tilboð verða í gangi.
Boðið verður upp á grillmat og drykkjarföng.
Allir eru hjartanlega velkomnir
Fræðslu- og skemmtinefnd
HH
Til baka