18 maí 2009
Fjölskylduhátið SVAK
Stangaveiðifélagið heldur fjölskylduhátíð laugardaginn 23. maí n.k. milli 14:00 og 16:00 vestan við Leirutjörnina í Innbænum.
Allir eru velkomnir.
Boðið verður upp á :
Veitingar.
Meðferð afla – Einar kokkur á RUB23 sýnir réttu handbrögðin.
Veiðar á tjörninni, leiðbeinendur á staðnum.
Hnýtingarsýnikennsla – hvernig notar þú hnýtingarsettið í veiðitúrnum.
Einhverjar stangir verða á staðnum en við hvetjum þá sem vilja að taka með sínar eigin stangir og leyfa börnunum að prófa að veiða í tjörninni eða til að sýna eigin snilldartakta við veiðar.
Við hvetjum alla til að mæta og eiga góða stund saman.
Fræðslu- og skemmtinefnd SVAK.
Til baka