Flugukastnámskeið verða haldin í Íþróttahöllinni á Akureyri. Um er að ræða tvö tveggja daga námskeið:
Byrjendanámskeið verður haldið sunnudagana 8. og 15.mars kl 9-11. (2 skipti, samtals 4 tímar) Framhaldsnámskeið verður haldið sunnudagana 29. mars og 05.apríl kl 9-11. (2 skipti, samtals 4 tímar)
Kennari verður hinn frábæri flugukastari Pálmi Gunnarsson, honum til aðstoðar verða Guðmundur Ármann Sigurjónsson og Jón Bragi Gunnarsson.
Kennarar verða hinir frábæru flugukastarar og öðlingar Pálmi Gunnarsson, Guðmundur Ármann og Jón Bragi Gunnarsson
Nánari upplýsingar veitir Ármann Helgi í síma 894 7552 eða fraedsla@svak.is Verð: kr. 7.000 en til félagsmanna í SVAK kr. 5.000