Nokkur áhugi er á því innan félagsins að hlúa að Gleránni. Á fundi sem formaður SVAK átti með bæjarstjóra Akureyrar kom fram að bærinn hefur áform um að lagfæra Glerársvæðið frá stíflu og niður í ós.
SVAK hefur tækifæri til að koma að þeirri vinnu, og gæti aðkoma SVAK verið ráðgjöf og vinna við veiðistaðagerð og fiskirækt. Stjórn SVAK hefur ákveðið að skipa 3 manna árnefnd Glerár og er hér með óskað eftir fúsum höndum til þess verks.
Áhugasamir hafi samband við Erlend Steinar í 860-2757 eða á erlendursteinar@gmail.com
Með veiðikveðju
ESF
Hver er þessi eina á
sem aldrei frýs,
gul og rauð og græn og blá
og gerð af SÍS?