Gengið hefur verið frá samkomulagi um að Stangaveiðifélag Akureyrar fái aðstöðu í gamla Barnaskólahúsinu en nú er endurbótum á því um það bil að ljúka. Við fáum afnot af skemmtilegu herbergi á 4. hæð og höfum það frá kl. 20-22 öll þriðjudagskvöld í vetur til að stunda hnýtingar.
Gengið er um aðalinnganginn í norðvesturhorni hússins og þaðan farið sem leið liggur upp á 4. hæð þar sem Húsið, menningar- og upplýsingaþjónusta ungs fólks á Akureyri, hefur starfsemi sína. Við höfum lítinn sal undir "súðinni" - gluggarnir lengst til hægri norðurmæni hússins á myndinni hér að ofan.
Stjórn Stangaveiðifélags Akureyrar skorar á félagsmenn að sýna lit og mæta með þvingurnar, fjaðrirnar og önglana næsta þriðjudagskvöld, 7. febrúar kl. 20.00. Hnýtum saman - það er meira gaman.