Undanfarin sumur hefur Stangaveiðifélag Akureyrar kynnt veiðisvæði sín af bökkum þeirra. Nú er komið að Ólafsfjarðará en félagið hefur haft ána á leigu undanfarin ár ásamt Stangveiðifélaginu Flugunni
Kynningin fer fram laugardaginn 30/7 á bökkum Ólafsfjarðarár og hefst kl 08. Guðmundur Ármann sem hefur veitt í ánni um árabil sér um kynninguna. Við sameinumst í bíla út við Bykó og deilum bensínkostnaði,lagt verður af stað um kl 07.
Efra svæði árinnar kynnt á fyrri vaktinni og það neðra á seinni vaktinni. Í hléinu verður boðið uppá grillaðar pylsur og drykki.
Þátttakendur mega taka með sér stangir og veiða á meðan á kynningu stendur og að henni lokinni, þó mega aldrei vera fleiri en 2 stangir útí einu.
Áhugasamir skrái sig með nafni og aldri á svak@svak is eða í síma 841-1588 eða 868-2825 fyrir 23/7.
Kynningin er þátttakendum að kostnaðarlausu fyrir utan smá bensínpening