26 jún. 2014
Veiðidagur fjölskyldunnar
Veiðidagur fjölskyldunnar verður haldinn næstkomandi sunnudag, 29. júní. Þá gefst landsmönnum kostur á að veiða án endurgjalds í fjölmörgum vötnum víðsvegar um landið.
Landssamband Stangaveiðifélaga hefur staðið fyrir Veiðidegi fjölskyldunnar í á þriðja áratug ásamt veiðiréttareigendum.
Hugmyndin á bak við daginn er að kynna stangveiði sem fjölskylduíþrótt. Í ár verða 31 vatn í boði á veiðideginum.

Ólafur Breki á bökkum Ljósavatns nú í vor.
Eftirtaldir veiðistaðir verða í boði frítt fyrir alla fjölskylduna:Á
Suðurlandi verður frítt að veiða í Geitabergsvatni, Þórisstaðavatni, Elliðavatni, Meðalfellsvatni, Þingvallavatni fyrir landi þjóðgarðsins, Úlfljótsvatni og Gíslholtsvatni.
Á
Vesturlandi og Vestfjörðum verður frítt að veiða í Langavatni á Mýrum, Hítarvatni, Vatnasvæði Lýsu, Hraunsfjarðarvatni, Hraunsfirði, Baulárvallavatni, Haukadalsvatni, Vatnsdalsvatni í Vatnsfirði og Syðridalsvatni í Bolungarvík.
Á
Norðurlandi verður frítt að veiða í Hópinu, Höfðavatni, Vestmannsvatni, Botnsvatni, Ljósavatni, Hraunhafnarvatni, Æðarvatni, Arnarvatni, Kringluvatni og Sléttuhlíðarvatni.
Á
Austurlandi verður frítt að veiða í Haugatjarnir, Urriðavatni, Langavatni, Víkurflóði og Þveit.
Nánari upplýsingar um veiðisvæðin er að finna í bæklingi LS um Veiðidag fjölskyldunnar. á heimasíðu LS www.landssambandid.is

Amalía Árnadóttir 7 ára með flottan urriða úr LJósavatni sem fékkst nú í vor
Til baka