Fimmtudaginn 4.apríl kl 20 ætlar Snævarr Örn Georgsson að segja okkur frá Jöklusvæðinu en félagsmenn SVAK njóta afsláttar þar.
Fjallað verður um svæði I og II í Jöklu, landnám laxins og hvernig veiðin hefur þróast undanfarin ár.
Farið verður yfir veiðistaði og veiðiaðferðir og við hverju veiðimenn mega búast.
Kynningin verður ríkulega skreytt með myndum og myndböndum.
Kynningin verður haldin í Deiglunni. Veitingar í boði.
Vonumst til að sjá sem flesta.