04 apr. 2013
Hofsá í Skagafirði- árkynning 8.apríl
Hofsá í Skagafirði á sér fastan hóp aðdáenda meðal stangveiðimanna. Þar á meðal er Ármann Helgi Guðmundsson en hann ætlar að kynna þessa skemmtilegu á fyrir okkur næsta mánudag 8.apríl. Stangveiðifélag Akureyrar hefur haft þessa á á leigu síðan 2008 og svo verður áfram.
Þetta er að sjálfsögðu liður í vetrarstarfi SVAK, Flúða og Flugunnar og verður árkynningin haldin í Amaróhúsinu í samstarfi við Veiðivörur.is og hefst kl 20. Vonumst auðvitað til að sjá sem flesta.
Kynning á Laxá í Aðaldal sem vera átti þennan dag samkvæmt upphaflegri dagskrá fellur niður.
Til baka