22 apr. 2012
23/4 Bleikjan í eyfirskum ám
Vetrarstarf SVAK, Flugunnar og Flúða heldur nú áfram. Á morgun 23/4 spáum við í bleikjustofninn í Eyjafirðinum, skoðum veiðitölur, veltum fyrir okkur hvort stofnar séu að minnka og hvort og hvernig við því þurfi að bregðast.
Pollurinn og veiðar á honum gæti líka komið til umræðu.
Stjórnarmenn úr veiðifélagi Eyjafjarðarár líta við og kynna breytingar á svæðaskipan.
Einhverjir kynnu að vilja að spurja þá af hverju Eyjafjarðaráin er ekki með vefsölu eins og aðrar betri ár :)
Við verðum á mjög óformlegum nótum og lítum á þetta sem spjall fremur en fyrirlestur eða erindi.
Allir velkomnir. Heitt á könnunni og kalt í kælinum....
Amaróhúsinu kl. 20:00
Til baka