|
Fréttir śr Svarfašardalsį
Ég skrapp á svæði tvö í Svarfaðardalsá í gær og byrjaði neðst þar sem holtsá rennur í ána. Ég hef gert það gott þar áður og veiddi meðal annars fjögurra punda urriða sem tók silfraðan tóby spún sem dreginn var á fleygiferð í gegnum hylinn. Ég byrjaði með stóra laxatúbu í von um að hann væri í árásahug en fékk engin viðbrögð. Þá setti ég undir vel þyngdan nobbler grænan að lit og í þriðja kasti nelgdi fallegur fiskur sem ég landaði. Þetta var cirka tveggja punda bleikja. Eitthvað hafa þeir orðið skelkaðir fiskarnir sem eftir voru því ég fékk engin fleiri viðbrögð. Ég færði mig ofar í ána og skoðaði mig um. Ég varð ekkert var og því ákvað ég að eftir stoppið myndi ég fara á upphafsstað. Kv. Jón Ingi Sveinsson |
Til baka |













