Fréttir/Heim
     Um félagið
     Veiðileyfi
     Spjallsvæði
     Tenglar
     Fluguveiðiskóli
     Veiðitölur
     Skráning í veiðibók


Hofsá

Ólafsfjarðará

Hörgá og Öxnadalsá

Svarfaðardalsá

Brunná

Veiðidagur fjölskyldunnar á sunnudaginn
VEIÐIDAGUR fjölskyldunnar verður haldinn næstkomandi sunnudag, 27. júní. Þá gefst landsmönnum kostur á að veiða án endurgjalds í fjölmörgum vötnum víðsvegar um landið. Í ár fagnar Landssamband Stangaveiðifélaga 60 ára afmæli og hefur staðið fyrir Veiðidegi Fjölskyldunnar í á þriðja áratug ásamt veiðiréttareigendum.


Veiðidagur fjölskyldunnar á sunnudaginn

Fréttatilkynning frá Landssambandi Stangveiðifélaga:



VEIÐIDAGUR fjölskyldunnar verður haldinn næstkomandi sunnudag, 27. júní. Þá gefst landsmönnum kostur á að veiða án endurgjalds í fjölmörgum vötnum víðsvegar um landið. Í ár fagnar Landssamband Stangaveiðifélaga 60 ára afmæli og hefur staðið fyrir Veiðidegi Fjölskyldunnar í á þriðja áratug ásamt veiðiréttareigendum.

Hugmyndin á bak við daginn er að kynna stangveiði sem fjölskylduíþrótt. Í ár verður 31 vatn í boði á veiðideginum.



Eftirtaldir veiðistaðir verða í boði frítt fyrir alla fjölskylduna:



Á Suðvesturhorni landsins verður frítt að veiða í Elliðavatni, Vífilstaðavatni, Meðalfellsvatni, Þingvallavatni fyrir landi Þjóðgarðsins og Úlfljótsvatni.



Á Vesturlandi og Vestfjörðum verður frítt að veiða í Geitabergsvatni, Þórisstaðavatni, Eyrarvatni, Skorradalsvatni í landi Indriðastaða, Langavatni á Mýrum, Hítarvatni, Hraunsfjarðarvatni, Baulárvallavatni, Haukadalsvatni, Vatnsdalsvatni í Vatnsfirði og Syðridalsvatni í Bolungarvík.



Á Norðurlandi verður frítt að veiða í Hópinu, Höfðavatni, Vestmannsvatni, Torfadalsvatni, Botnsvatni, Ljósavatni, Hraunhafnarvatni, Æðarvatni og Arnarvatni.



Á Austurlandi verður frítt að veiða í Kringluvatni, Urriðavatni, Langavatni, Víkurflóði, Höfðabrekkutjörnum og Þveit.

Bæklingur - prentvænn


Til baka


Stangaveiðifélag Akureyrar ][ www.svak.is ][ svak@svak.is ][ 841-1588 ][Pósthólf 357 602 Akureyri][Kt. 420503-2880][Rn.565-26-20503]