Ánægður veiðimaður sendi okkur línu um Svarfaðadardalsá. "Var að koma úr Svarfaðardalsá svæði 5 þar sem ég fékk 6 punda lax. Fiskurinn fékkst í litlum streng neðan við bæinn Sandá á svæði 5.
Lesa meira
|
Ágætis veiði hefur í Hofsá þrátt fyrir mikinn jökullit frá ármótum við Fossá, Runukvíslin er eftir sem áður blátær og nokkuð af fiski þar. Við höfum oft óskað eftir því því veiðimenn að þeir sendi okkur smápistil og myndir frá ferðum sínum. Þessi sendi okkur línu um notalega dvöl í Hofsánni.
Lesa meira
|
Fluguveiðiskóli SVAK bætir við námskeiðum í ágúst og þar á meðal laxveiði með leiðsögn. Námskeiðið fer fram í Mýrarkvísl í Reykjahverfi. Einstakt tækifæri til að kynnast þessari einstöku laxveiðiá.
Lesa meira
|
Gaman getur verið að glugga í veiðibókina sem er aðgengileg hér til hliðar. Við viljum hvetja menn til að skrá jafnóðum, svo veiðibókin veiti sem bestar upplýsingar um stöðu mála hverju sinni. Þar sem ekki er dálkur í veiðibókinni fyrir númer svæðisins bendum við veiðimönnum í Svarfaðardalsá á að ská númer svæðisins í dálkinn "númer veiðistaðar".
Lesa meira
|
Ekki er vatnsleysinu fyrir að fara hér í Eyjafirði - nóg vatn er og verður í öllum ám og jafnvel á köflum of mikið. Ágætt er að hafa í huga að árnar hér geta verið jökulskotnar, þannig að í sól og miklum hitum vaxa sumar þeirra mikið og skolast. Kvöldvaktirnar í Hörgá og Svarfaðardalsá hafa t.d. verið nánast óveiðandi í mestu hitunum. Morgnarnir hafa hinsvegar verið fínir.
Lesa meira
|
svak.is fékk fyrirspurnir í kvölfar fréttar um Ólafsfjarðará; Sú fyrri sneri að nafni árinnar sem sannarlega heitir Fjarðará - SVAK hefur hinsvegar valið að nota Ólafsfjarðará til aðgreiningar frá allmörgum öðrum Fjarðarám.
Lesa meira
|
Í gær stóð Fluguveiðiskóli SVAK fyrir barna og unglinga námskeiði sem fór fram við Brúnastaðará í Fljótum. 6 drengir frá níu til þrettán ára mættu til leiks. Strákarnir settu í 36 bleikjur og lönduðu 21, það er ekki hægt að segja annað en að námskeiðið hafi verið gríðalega vel heppnað í alla staði.
Lesa meira
|
Feiknaveiði hefur verið í Ólafsfjarðará um helgina, fengust t.d. 130 bleikjur á sunnudeginum á 4 stangir. Bleikjan virðist mun vænni en síðustu ár og var talsvert af aflanum 40-45 cm fiskar. Afar kraftmiklar göngur eru nú í ánna og virðist fiskur vera á öllum veiðistöðum.
|
Fluguveiðiskóli SVAK fór af stað í byrjun júlí og fékk frábærar undirtektir. Nú hefur verið bætt við nokkrum námskeiðum og árkynningum í ágúst.
Lesa meira
|
Nú stendur yfir rannsókn á bleikjustofnum í Eyjafirði. Mikið af bleikju hefur verið merkt og er áriðandi að veiðimenn komi því skila ef þeir fá merkta fiska...
Lesa meira
|
Við höfum lítið frétt úr Hörgánni það sem af er sumri, bleikjan er þó mætt þar einsog eftirfarandi frásögn mikils Hörgárkappa gefur til kynna:
Lesa meira
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|