Fréttir/Heim
     Um félagiš
     Veišileyfi
     Spjallsvęši
     Tenglar
     Fluguveišiskóli
     Veišitölur
     Skrįning ķ veišibók


Hofsį

Ólafsfjaršarį

Hörgį og Öxnadalsį

Svarfašardalsį

Brunnį

Hofsį

Hofsá í Vesturdal Skagafirði.
Hofsá er innarlega í Vesturdal í Lýtingsstaðahreppi í Skagafirði um 330 km frá Reykjavík og 130 km frá Akureyri . Veiðisvæði árinnar er um 25 km langt og er uppistaða veiðinnar sjógengin bleikja,  þótt stöku sjóbirtingur og lax veiðist þar. Hofsá rennur í Vestari jökulsá en á uppruna sinn upp undir Hofsjökli úr vötnum og lækjum þar í kring. Áin er nokkuð mikið vatnsfall og er stundum jökullituð en í hana rennur Fossá sem kemur úr Hofsjökli en ofan við ármót Fossár er Hofsáin alltaf tær á 5 til 6 km svæði og heitir þá Runukvísl upp að Runufossi sem er efsti veiðistaður .

Aðgengi og aðstaða
Aðgengi að ánni er ágætt alveg inn að bænum Giljar en þar fyrir innan er ráðlegt að vera á fjórhjóladrifnum bílum helst jeppum . Töluverð ganga er með efrihluta árinnar en hægt er þó að aka nálægt henni víða. Veiðihús stendur um 50 m austan við þjóðveginn og er áin um 50 m vestan við veginn.  Þetta er rétt við bæinn Litlu-Hlíð, örskömmu áður en komið er að rimlahliðinu.

Frá veiðihúsi og að bergvatnssvæðinu ofan Fossár eru um 13 km og tekur um 25-30 mínútur að aka þangað. Til að fara þangað er beygt til vinstri (suðurs) frá veiðihúsi (gegnum rimahliðið) og haldið sem leið liggur áleiðis suður Sprengisand. Þegar komið er að Þorljótsstöðum (aður en vinstri beygjan uppá sprengisand kemur) er farið beint áfram útaf veginum og ekinn áfram slóðinn þar. Sá slóði er seinfarinn og aðeins fær 4x4 bílum.  Slóðinn endar við Lambavað í Hofsá, rétt ofan ármótanna.  Ekki borgar sig að fara þar yfir ánna og aka lengra, heldur er best að leggja þar  land undir fót.


Veiðitilhögun í Hofsá sumarið 2010
Veiðitímabil:    4. ágúst til og með 4. október
Stangafjöldi:   3 stangir og veiðhús stundum innifalið.
Leyfilegt agn:  Eingöngu fluguveiði á öllu svæðinu en leyfilegt er að vera með kaststöng og flugu.  Ekki er leyfilegt að nota þríkrækjur.

Verð:
Mánudag-fimmtudag 15.900 með húsi,  annars   9.900
Föstudag-Sunnudag  18.900 með húsi,  annars 15.900

Veiðikvóti og reglur: 
Til 1. september er leyfilegt að hirða 3 bleikjur á stöng á dag,  í heild 9 bleikjur á dag. þegar kvóta er náð má veiða áfram en sleppa verður öllum fiski. Eftir 31 ágúst skal sleppa öllum fiski. Veiðimönnum ber skylda til að lengdar, þyngdarmæla og kyngreina allan drepinn fisk, ásamt því að lengdarmæla verður allan fisk sem sleppa á og skrá samviskusamlega í veiðibók.

Fyrirkomulag:
Hvern veiðidag er heimilt að veiða í 12 klst á tímabilinu 06:00 - 24:00.   Stangir eru seldar í heilum dögum og mega veiðimenn koma í hús kvöldið fyrir veiðidag kl. 22.00.  Þeir sem eru að hætta þrufa að yfirgefa veiðihús fyrir þann tíma.

Veiðitölur:
Sumarið 2008 veiddust innan við 100 fiskar í Hofsá, allt fyrir ofan ármót við Fossá.  Neðan ármótanna var áin mjög jökullituð allt sumarið. 

Sumarið 2009  veiddust 442 bleikjur og 2 laxar eða 444 fiskar á 22 veiðidögum, sem gerir um 20 fiska meðalveiði á dag. 
Veiši į hvern veišidag sumariš 2009,  22 dagar voru seldir og veiddust 444 fiskar aš mešaltali 20 fiskar į dag.

Tilmæli frá Árnefnd Hofsár.
Skylt er að sleppa allri bleikju stærri en 45 sm með framtíð bleikjustofns veiðisvæðisins í huga og umfram allt að ganga vel og snyrtilega um ánna og náttúru hennar og aka aldrei utan vegaslóða. sem fyrir eru .

Veiðimenn eru vinsamlegast beðnir um að virða veiðireglur og fyrirkomulag
Alvarleg brot á þeim geta þýtt brottrekstur frá öllum veiðisvæðum SVAK.

Kaupa Veiðileyfi

 

 

 



 

 

Kort 1
Kort 2

Ábendingar BHA

Til baka


Stangaveišifélag Akureyrar ][ www.svak.is ][ svak@svak.is ][ 841-1588 ][Pósthólf 357 602 Akureyri][Kt. 420503-2880][Rn.565-26-20503]