Fréttir/Heim
     Um félagið
     Veiðileyfi
     Spjallsvæði
     Tenglar
     Fluguveiðiskóli
     Veiðitölur
     Skráning í veiðibók


Hofsá

Ólafsfjarðará

Hörgá og Öxnadalsá

Svarfaðardalsá

Brunná

Ólafsfjarðará

 
-------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Ólafsfjarðará:

Ágæt veiði var í Ólafsfjarðará sumarið 2009 og veiddust 919 bleikjur á þeim 57 veiðidögum sem SVAK og Flugan hafa til umráða.
Það gerir um 16 fiska á dag að meðaltali á hvern veiðidag eða 4 fiska á dagstöng.
Við viljum vekja sérstaka athygli á septemberdögunum, en þeir hafa verið vanmetnir og lítið nýttir. 
  

 

 

 

 Veiðistaðarlýsing eftir Guðmund Ármann.

Svak og stangveiðifélagið Flugan hafa í sameiningu tekið á leigu Fjarðará í Ólafsfirði. Landeigendur halda eftir einu degi í viku (þriðjudagur). SVAK hefur til sölu um helming daganna en Flugan hinn helminginn. Hér neðar má sjá þá daga sem SVAK hefur til sölu en á síðu Flugunnar má sjá þá daga sem þeir hafa til sölu.
Fyrir veiðisumarið 2008 voru allir helstu veiðistaðir árinnar merktir svo  og svæðamörk .Einnig var veiðikort unnið. Það eru 20 skráðir veiðistaðir við Ólafsfjarðaránna og eru flestir þeirra mjög skemmtilegir en það er með Ólafsfjarðará eins og aðrar sjóbleikjuár að bleikjan getur verið dyntótt. Allt frá því að vera brjáluð taka og að vera veiði sem reynir á innsæi og útsjónarsemi veiðimannsins .
Fiskvegur hefur verið gerður við Hólsfoss en svæðið þar fyrir ofan er enn hálfgert tilraunasvæði og var ekkert veitt þar 2008 .Verið er að kanna hvort bleikjan festi ekki rætur þarna fyrir ofan og verður fylgst vel með því og ákvarðanir með veiði þar teknar í framhaldi af því . Það hefur Einnig sést sjóbirtingur í ánni og stöku lax en bleikjan hefur samt yfirhöndina og megi hún verða það til framtíðar, þessi harðgerði fiskur sem gleður okkur veiðimennina í hita leiksins.

  


Staðsetning: Ólafsfjarðará rennur til Ólafsfjarðarvatns í Ólafsfirði. Hún á upptök austast á Lágheiðinni og í fjalllendinu beggja vegna dalsins. Ólafsfjarðará er tær dragá, meðalvatnsmikil og frekar lygn neðantil en getur verið straumhörð ofantil. Seinni hluta sumars er þarna oft ágæt sjóbleikjuveiði, mest 1 – 2 punda fiskar . Ólafsfjarðará er 61 km frá Akureyri og 440 km frá Reykjavík.

Tölur: Ekki eru til upplýsingar um árlega veiði hjá veiðimálastofnun, en heimildir herma að árlega veiði sé um 1.600 fiskar (1.300-2.000) og er meðalstærð um 700-800 gr.

  

Leyfilegt agn: Fluga og maðkur

Veiðifyrirkomulag: Ánni er skipt í tvö svæði og er veitt á tvær stangir á hvoru svæði. Kvóti á dag er 20 fiskar á stöng og er ekki heimilt að færa hann á milli stanga eða á milli daga. Ef keyptar eru báðar stangir á svæði er heimilt að bæta þriðju stönginni við og leyfa 12 ára og yngri að veiða á hana. Sú stöng er kvótalaus en heimilt að færa á hana kvóta af hinum tveim. Aðeins verða seldir heilir dagar og eru svæðaskipti á vaktaskiptum. Veiða þá tvær stangir á efra svæði fyrri vaktina og á neðra svæði seinni vaktina og öfugt. Veiðitími er frá kl 07:00 til 13:00 og 16:00 til 22:00 en eftir 15 ágúst er seinni vakt frá 15:00 til 21:00.



Aðgengi: Aðgengi að ánni er gott og geta menn auðveldlega verið á fólksbílum en sumstaðar þarf að sjálfsögðu að ganga dálítinn spotta en það er jú hluti af veiðiferðinni að ganga og njóta útiverunnar.
Veiðimenn eru beðnir um að taka tillit til þess að allur akstur utanslóða og á túnum er stranglega bannaður og viljum við biðja veiðimenn um að ganga vel um og taka allt rusl með sér heim að loknum veiðidegi. við viljum að umgengni veiðimanna við Ólafsjarðará verði félaginu okkar og öllum veiðimönnum til sóma.

 

Veiðihús: Ekkert veiðihús, upplýsingar um aðra gistingu má finna hér

Með veiðikveðju
Árnefnd Ólafsfjarðarár

Kaupa Veiðileyfi

  

 

 

Kort Svæði 1.
Kort svæði 2.
Loftmynd svæði 1.
Loftmynd svæði 2.

 Veiðistaðir:

  1. LÓNSHYLUR
  2. HESTHÚSHYLUR
  3. SÍMAHYLUR
  4. ÞJÓVAÐSHYLUR (ÞJÓFAVAÐSHYLUR)
  5. GARÐSHYLUR
  6. HNAUSAHYLUR
  7. KATTARHYLUR
  8. HRÚTHÓLSHYLUR
  9. MESSUVAÐSHYLUR
  10. MJÓIHYLUR
  11. SVARÐARHÓLMI
  12. GRAFARHYLUR
  13. BREIÐA.
  14. MERKIHYLUR
  15. INGIMARSHYLUR
  16. SYÐRIHYLUR
  17. HÁEYRARHYLUR
  18. HÓLSHYLUR
  19. HÓLSFOSS



Ábendingar BHA

Til baka


Stangaveiðifélag Akureyrar ][ www.svak.is ][ svak@svak.is ][ 841-1588 ][Pósthólf 357 602 Akureyri][Kt. 420503-2880][Rn.565-26-20503]