Brunná
|
Brunná í Öxarfirði.
Það eru þrjár ár sem mynda Brunná: Gilsbakkaá, Tunguá og Smjörhólsá. Gilsbakkaá rennur ofan af Laufskálafjallgarði og svæðinu vestan hans. Tunguá og Smjörhólsá eiga upptök sín vestan og sunnan við Hafrafell, þær sameinast og mynda Smjörhólsárfossa sem eru ekki fiskgengir en fossarnir mynda fallega veiðistaði á miðju svæði Brunnár. Vatnsmagn Brunnár eykst töluvert neðan fossa, þó áin geti ekki talist vatnsmikil fyrr en hún sameinast Sandá sem er ein af kvíslum Jökulsár á Fjöllum, en í þeim vatnaskilum eru neðstu veiðistaðir í ánni. Brunná rennur í sjó norðan við Öxarnúp.

Veiðisvæði árinnar er um tíu km. langt og eru um 45 merktir veiðistaðir í ánni. Mikil vorflóð koma í Gilsbakkaá ofan úr svokallaðri Sauðafellsblá, undir Sauðafelli. Í drögum og giljum safnast þar fyrir krapastíflur í vorleysingum en þegar þær bresta breytist áin í íllúðlegt jökulfljót. Flóðin eru stutt en sjálfsagt má færa rök fyrir því að seiðabúskapur árinnar hafi oft farið ílla í þessum stórflóðum. Engu að síður er fiskstofninn sterkur og jöfn og góð veiði einkennir ána. Gilsbakkaá sem er dragá, getur orðið vatnslítil á þurru sumri en fyrir neðan Smjörhólsárfossa er rennsli árinnar jafnt allt sumarið, enda árnar sem sameinast Brunná þar að stórum hluta lindár með jafnt rensli.

Gróflega mætti skipta ánni í þrjú jafn stór en ólík veiðisvæði. Landslag á neðsta hlutanum er mun flatara en ofar. Grasigróin tún og engi liggja að ánni þar sem hún rennur lygn með hæga strengi við bakka. Þess má geta að á þessum grasi grónu bökkum, nánar tiltekið við Klifhyl er talið vera sögusvið blóðugs bardaga milli Hróa í Klifshaga og Vémundar ; höfðingja úr sveitinni sem sagt er frá í Reykdælu. Á miðsvæðinu hallar landið meira. Hér hefur áin grafið sig niður og myndað einskonar dal eða gil sem hvergi er þó torvelt yfirferðar. Flúðir og lágir fossar einkenna þetta svæði, hyljir eru afmarkaðir þó alltaf leynast góðir strengir sem vert er að skoða þó þeir láti ekki mikið yfir sér. Á þessu svæði er einkennandi líkt og á efsta svæðinu hve gróður er mikill. Efsta svæðið er flúðótt, hyljir mun nettari og áin viðkvæm svo víða þarf að skríða fram á bakka enda vatnsmagn minna. Á efri hluta þessa svæðis rennur áin í djúpt skornu gili en neðar meðfram samfelldri skógivaxinni hlíð. Hér er auðvelt að gleyma sér hvort sem er við veiðar eða náttúruskoðun; Tær áin, fjölbreytileiki gróðursins og grasivaxnar hlíðar Hafrafells festa veiðimanninn í landslagsmynd sem erfitt getur reynst að stíga út úr.
Í Brunná er sterkur stofn sjóbleikju og bæði staðbundin og sjógengin urriði. Meðalþyngd bleikju er há og 4-6 punda bleikjur ekki óalgengar.. Síðustu ár hefur Pálmi Gunnarsson verið með ána á leigu og er eingöngu veitt með flugu. Sleppa skal öllum urriða en veiðimenn mega taka eina eða tvær bleikjur á grillið.
Fáir fara fisklausir frá Brunná en veiðitölur eru aukaatriði þegar veitt er í ánni. Stund á bökkum árinnar er ógleymanleg, náttúrufegurð er mikil og fegurð og fjölbreytileiki veiðistaða er með ólíkindum. Það er ögrun að veiða í Brunná. Áin er viðkvæm en á móti kemur að oft eru veiðimenn að egna fyrir fiska sem þeir sjá.


Dagar í boði:
Kaupa Veiðileyfi
Ábendingar BHA
|
Stangaveiðifélag Akureyrar ][ www.svak.is ][ svak@svak.is ][ 841-1588 ][Pósthólf 357 602 Akureyri][Kt. 420503-2880][Rn.565-26-20503]