08 apr. 2011
Hver má veiða hvar, hvenær og hvernig?
Mega smábátar veiða bleikju á Pollinum?
Má veiða í ræsinu við Varðgjánna?
Hver má veiða í net í firðinum?
Má hver sem er sleppa seiðum í ár og læki?
Afhverju þarf að gera nýtingaráætlun?
Hvað mega og eiga veiðiverðir gera?
Árni Ísaksson, forstöðumaður lax- og silungsveiðisviðs Fiskistofu, verður með erindi á SVAK-kvöldi að Hólabrautinni mánudaginn, 18. apríl kl. 20:00
Meðal atriða sem Árni fer yfir eru:
- Hlutverk lax- og silungsveiðisviðs Fiskistofu
- Lög og reglur um lax og silung
- Seiðasleppingar
- Nýtingaráætlanir
- Hlutverk, skyldur og úrræði veiðieftirlitsmanna
- Netaveiði í sjó og vötnum - hverjir mega veiða, hvar og hvenær?
- Malartekja
- Stangveiði í sjó
- Veiðar á laxi og silung í sjó
Fundurinn er opinn öllum hagsmunaðilum og áhugamönnum um stangveiðar og fisk í ám og vötnum.
Til baka